miðvikudagur, 16. desember 2015

El Ninjo á eftir að valda miklu tjóni í USA.

El Ninjo á eftir að valda miklu tjóni í USA á næsta og þarnæsta ári, vegna hækkandi sjávarstöðu, hvirfilvinda og óstöðugs sjólags.

Bláa myndin er ströndin eins og hún er nú sett inn með punktalinum frá landi og út á sjó, og síðan tvílita línan eins og þetta kemur til með að líta út m.v.100 ára sögu þróun og bátahafnir og hús nærri strönd horfin og flugvöllurinn sem var inn í landi er að nálgast flæðarmálið.

Gráa myndin sýnir 2 gliðnunarsprungur sem alltaf eru á hreyfingu, en aðeins 200km eru að fyrsta kjarnorkuofni þeirra Californiubúa sem er talinn í hættu þar sem undirlag þessara 2 misgengja er álíka hyldýpi stærstu sprungunnar San Andreas og hefur einnig áhrif þar en fræðimenn reikna sig sveitta hvað muni gerast.

2009 setti ég inn á gömlu síðuna sýn sem ég fékk þegar stór hluti fjalls á Kanaríeyjum rennur í sjó fram og lyftir sjónum upp um 200 metra, og keyrir af stað uns fjallið nær hljóðhraða og stefnir á NY færir þá stórborg á kaf og Albany sem er að mig minnir 100km ofar í landinu þótt höfuðstaður NY sé.

Þaðan æðir aldan áfram til Californiu og setur þar allt á kaf en allir skýjakljúfar hundruðum saman falla eins og spilaborgir.

Þetta var döpur sjón og vona að þetta rætist aldrei, en hafsbotninn við eyjarnar er að síga og togar í fjallið sem er holt að innan eins og swissneskur ostur.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.