þriðjudagur, 3. nóvember 2015

Já jörðin að gliðna í sundur.

Já jörðin að gliðna í sundur og sérfræðingar alveg rólegir yfir ástandinu í Wyoming í USA, þótt þeir hafi enga hugmynd um hva sé að ske.

Ég Baldur Bjarnason var að tala við Þór Gunnlaugsson á Skype í gærdag 2. nóv, og fór hann þá að tala um fellibyl sem myndi myndast á ( Gulf of Aden. Adenflóa ), sem gerist nánast aldrei en einn kom með 160km hraða og 500mm af vatni og skall á borgina og nærsveitir og hvergi hættur.

Þessa frétt má nú lesa á Visir.is:

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Kristnir skulu fyrir borð á flotillunni svo að við hin komumst af.

17. apríl. 2015. Eldra Efni.
Mikil var sú blessun að þessir 15 morðingjar voru handteknir við komuna til Ítalíu eftir björgun á hafi þegar flóttamennirnir þorðu að segja frá hvað gerðist um borð á leiðinni yfir sundið.

Jú kristnum var smalað saman og hent fyrir borð af morðingjum sem leyndust meðal fólksins en það myndaði hringkeðju utan um sig í nokkrum lögum til að verjast því að vera aflífuð en þar sem kristnir eru réttdræpir í múslimskum löndum að boði Alla og komust því á leiðarenda örmagna því ekki mátti rjúfa keðjuna þá mannlegu.

Enginn er til frásagnar hve mörgum morðingjum og illmennum hefur verið hleypt í land á Evrópskri grund en flutningarnir eru stanslausir enda hátt flutningsgjald.

Það er nú svo að allt njósnabatterí NATO er fullfært um að skoða af himni ofan hvað er að gerast við strendur þessara landa og senda orustuþotur og sökkva þessum flatbyttum á landi.

Horfði á viðtal við forseta Sýrlands sem virðist betur geymdur og varinn en Saddam Hussein, en engin munur á illverkum þessara manna og ekki er þjóðarauðurinn sem þeir hafa stolið og flutt til Swiss og lagt inn á HSBC bankann og fleiri stofnanir, og kaupa fyrir það hjálpargögn en senda ekki reiðufé á vörubrettum eins og Bandaríkjaher gerði í Írak eftir að bankakerfið hrundi, en trilljónir dollara gufuðu upp þegar brettin skiluðu sér ekki á áfangastað, og svo þurfti að smyrja lófana á hverjum einasta embættismanni til að hlutirrnir gætu hossast af stað alveg sama hvað var rafmagn á búðir þeirra rennandi vatn á gistihótel hermanna og fleira.

Kristnir ferðamenn eru hvergi óhultir í múslimskum löndum, og gott skotefni á ferðamannastöðum þar sem hægt væri að smala saman stórum fjölda í einu og geng frá því sem vísu að slíkur voðaverknaður mun ske en spurning hvar og hvenær.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.


Skilgreining Transheilunar 1 hluti

29. desember. 2014. Eldra Efni.
Góðir lesendur,

Ég hef fengið nokkrar góðar spurningar um nánari útlistun á hver munurinn sé á transheilun og andlegri heilun( Spiritual Healing )

Andleg heilun gengur aðallega út á að heilarinn starfar eins og opin rás fyrir andlegan læknir sem með honum vinnur sem kemur þá nær áru hans, og blandast henni með yfirskyggningu en á þessu stigi hefur hinni guðlegu tengingu ekki verið komið á og því ekki með fullum styrk.

Á þessu stigi getur allt eins verið um náttúrulega/magnetiska heilun að ræða þar sem leitt er eingöngu frá orku miðilsins til sjúklings sem getur aldrei náð styrk alheimsorkunnar.

Sjúklingur mun finna fyrir bættri líðan um stundarsakir og hita frá höndum heilarans og þá hugsanlega trúað því að þetta sé hin rétta orka fyrir hann að handan.

Heilarinn finnur fljótt að hann sé orðinn orkulaus uppgefin og gæti þurft nokkrar vikur til að ná sjálfur fullum styrk aftur.

Heilarinn ætti í raun séu allar tengingar réttar að finna sig fullan af orku og vellíðan eftir meðferð sjúklinga sinna.

Því er þetta lykilatriði fyrir meðferðaraðila að huga vel að eigin tengingum gefi þeir sig út á þessi mið að taka fólk í heilunarmiðlun.

Sjálfur vinn ég eingöngu í transheilun þar sem mér finnst best að vinna þannig bæði fyrir sjálfan mig og sjúklingana og læt stjórnanda minn um að setja kyrrð á mig og leiða mig á hárréttan stað sem hentar þeim best fyrir aðgengi að mér en það er ekki alltaf á sama stað heldur fer það eftir hvaða sjúkdómar hrjá viðkomandi sjúkling.

Sjálfur hef ég gert tvær tilraunir til þess að keyra mig út og finna þolmörkin hjá sjálfum mér.

Fyrsta umferð var að vinna stanslaust frá 09.00 - 12.00 og tengdur allan tímann 1klst í matarhlé og síðan unnið stanslaust 13.00 - 19.30 með stuttum salernisferðum til þvotta á milli sjúklinga en alltaf tengdur.

Niðurstaðan var sú að orkan hjá mér var slík að ég fékk mér langan göngutúr um kvöldið horfði á skemmtilega kvikmynd og svaf fullan svefn um nóttina.

Hafist var handa 09.00 næsta morgun án hvíldar, til 15.30 og var útkoman sú sama.

Mér varð þá ljóst að læknarnir mínir pössuðu alltaf upp á að orkan hjá mér væri á fullum styrk og fann ég því enginn þreytumerki eftir þessa törn eða aðra vanlíðan og sef alltaf vel um nætur án drauma eða annarra truflanna.

Transheilun er á öðrum nótum en þar er miðillinn beintengdur sem milliliður milli alheimsljóssins og sjúklingsins.

Læknarnir koma þá alveg upp að miðlinum um áru hans og ná stjórn á miðtaugakerfi hans og geta því nýtt sér líkama hans til orkuflutnings í sínu hreinasta og sterkasta formi og einnig geta þeir hreyft hendur hans að vild.

Þarna kemur miðillinn ekki að neinu leiti að sjúklingnum heldur sjá sérfræðingarnir um lækninguna án okkar afskipta.

Besta tengingin fyrir þá er hryggur sjúklings en þar geta þeir beint orkunni um hrygginn og mænuna mænuvökvann ásamt blóðrás,miðtaugakerfinu og komið lækningunni á þá staði sem þess þurfa.

Lækning getur skeð skeð strax í sumum tilfellum en önnur taka nokkra daga sem ég hef sannreynt að er rétt því að sjúklingarnir fá heimsóknir um nætur í svefni 3 - 4 daga eftir meðferð.

Ég hef á undanförnum mánuðum unnið með börn á aldrinum 5 - 17 ára sem hafa verið skilgreind af læknum með ofvirkni kvíðaröskun, streytu, vöðvabólgu, svefnleysi, vanlíðan, og fleiri alvarlega sjúkdóma á geðsviði og hafa þau öll tekið breytingum til batnaðar.

Sum hafa á fyrsta tíma geta setið kyrr og einbeitt sér en önnur hafa tekið við sér eftir 2 skipti.

Þessar vikurnar er verið að trappa þau niður á Ritalíni en það mun koma í ljós hvort varanlegur árangur hafi náðst.

Þau eiga það sammerkt að eitthvað hafi farið úrskeiðis í fæðingu,tekið langan tima eða nánast skotist út eða bráðakeisara beitt og í 2 tilfellum sogklukku.

Ég vil nú fara varlega að skilgreina þetta nákvæmlega en orðið áfallaröskun kemur oft upp.

Ég mun halda áfram að sinna börnum með þessi vandamál, því að sé hægt að létta á þeim og foreldrunum þeirri gríðarlegu röskun sem þessir sjúkdómar leggja á þau sjálf og heimilin þá er miklum áfanga náð.

Góðar stundir og sýnið hvort öðru umhyggju og velvilja.

Þór Gunnlaugsson
Heilunar og transmiðill
Er einnig á lækningasviðinu


____________________________________________________

Farið inn á Gestabók, farið neðst á síðuna og skrifið ósk ykkar um að ég leiti eftir svörum við spurningum ykkar frá vinum okkar að handan.

Þetta getur ekki orðið einfaldara að hafa samband við mig. .


GESTABÓK.